Listasalur Mosfellsbæjar- Jól 2025
Share
Ég tók þátt ásamt mörgum öðrum listamönnum og mætti í Listasalinn sem er staðsett inn í Bókasafninu, með tvö málverk á þessa skemmtilegu sýningu.
Ég var svo heppinn að vera valin úr hópi umsækjenda og var þetta frábær reynsla.
þau stóðu sig prýðilega að setja upp salinn og mætti ég á opnunina(að sjálfsögðu) og var þar í dágóðan tíma að skoða verkin hjá öðrum.
það er alveg sama hvað ég tók marga hringi í salnum, alltaf sá ég eitthvað nýtt með hverjum hring.
Vildi svo skemmtilega til að fyrrum vinnufélagi var með á þessari sýningu og var þarna með fallegar blóma myndir úr akríl.
Ég nýt þess mikið að skoða verkin frá öðrum listamönnum og dást að fegurðinni.
því ég veit hvað maður þarf að gefa af sér fyrir hver eitt og einasta.
það er dáldil mikil fegurð í því.
Ég er ekki frá því að sækja um á næsta ári líka, krossum fingur fyrir að fá að vera með.
þakka þeim sem mættu til mín á opnunina, ómetanlegur stuðningur🫶🏼
Kær kveðja
kristjana Rúna
Jana Art